Skilmálar
Allir hafa fullan lesaðgang að vefnum bjartsýni.is.
Ætlast er til að innsendar sögur (eða aðrir textar) séu á íslensku. Fimm manna ritstjórn skoðar hvort sögur eru í samræmi við skilmála bjartsýni.is og velur sögur sem birtar eru undir fyrirsögninni Saga dagsins. Ritstjórn bjartsýni.is áskilur sér rétt til birta ekki þær greinar sem eru í andstöðu við jákvætt og uppbyggilegt hugarfar, sem og efni sem beinist gegn einstaklingum eða hópum, eða á einhvern hátt er ekki í samræmi við markmið bjartsýni.is, sem er að sjá og skoða björtu hliðarnar, gefa fólki ferskar hugmyndir og leita tækifæra fyrir þá sem eru í vanda staddir.
Hámarkslengd greina er 5000 slög (rúmar vær síður).
Notendur skulu merkja innsendar greinar og athugasemdir með eigin nafni. Ritstjórn áskilur sér rétt til að loka á IP tölur hafi notandi ítrekað brotið gegn skilmálum vefjarins.
Notandi skuldbindur sig til að senda ekki inn texta sem er í eign þriðja aðila eða á einhvern hátt varinn höfunarrétti. Slíkt efni verður fjarlægt að beiðni rétthafa.
Bjartsýni.is áskilur sér rétt til að birta innsent efni í öðrum miðlum; óski notandi eftir að það sé ekki gert má óska þess með tölvupósti á netfangið bjartsyni@bjartsyni.is.
Bjartsýni.is áskilur sér réttindi til að leiðrétta stafsetningu og augljósar málfarsvillur á greinum, stytta efni og ritstýra því með það að leiðarljósi að það skili sér sem best til lesenda.
Óheimilt er að senda ruslpóst (spam) og auglýsingar í gegnum kerfið.
Notandi samþykkir að miðla ekki ólöglegu efni, áreiti, hótunum, særandi skrifum eða nokkru öðru sem getur valdið skaða. Notandi samþykkir sérstaklega að miðla ekki háði, rógi, smánun, ógnun eða ráðast á mann eða hóp manna vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar, í samræmi við ákvæði 233. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Bjartsýni.is áskilur sér rétt til að grípa inn í ef talið er að athugasemdir séu meiðandi eða brjóti gegn þessum skilmálum.
Bjartsýni.is ber ekki ábyrgð vegna bilunar í tölvubúnaði eða óvirkrar þjónustu. Bjartsýni.is ber heldur ekki ábyrgð á þeim gögnum sem kunna að glatast af þessum sökum eða öðrum.
Rísi dómsmál vegna notkunar vefjarins skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Ábyrgðarmaður vefjarins er Hrannar Baldursson.



