• Heim
  • Allar sögur
  • Ávarp
  • Senda inn sögu
  • Skilmálar
  • Tenglar
  • Um vefinn

  • Ávarp


    Í haust hef ég átt fjölda funda á vettvangi fyrirtækja, skóla og stofnana og tekið þátt í samræðum um erfiðleikana í kjölfar hruns bankanna. Nokkuð kom á óvart hversu gott hljóð var víða í þeim sem tóku til máls. Á fundi hjá Marel í Garðabæ varpaði starfsmaður fram þeirri hugmynd að setja upp vefsíðu þar sem fólki gæfist kostur á að segja frá jákvæðum fréttum úr atvinnulífinu og af sínum starfsvettvangi sem og nýjum hugmyndum. Þetta gæti orðið til að veita þjóðinni innblástur í mótstreyminu. Við höfðum svo samband við nokkra aðila sem vildu styðja þessa hugmynd og af því sprettur vefurinn bjartsýni.is.
     
    Rétt er að margir hafa brennt sig á að vera óhóflega bjartsýnir, en það breytir því ekki að nauðsynlegt er að vera bjartsýnn að einhverju marki. Þeir sem ætla að byggja upp og efla fyrirtæki, byrja á ný eða reisa úr rústum hafa þörf fyrir bjartsýni. Hversu slæmar sem horfurnar kunna að vera eða ástandið tvísýnt, þarf góðan skammt af bjartsýni. Annars verður ekkert framtak né árangur.
     
    Við Íslendingar erum oft að segja sögur af sigrum. Og þannig hefur það lengi verið. Við vinnum smáa sigra og stóra í daglegu lífi og hversdagslegri önn. Allir skipta þeir máli. Á 20. öldinni vann þjóðin saman sigra í baráttunni fyrir sjálfstæði, í glímunni við berklaveiki, í uppbyggingu menntakerfisins og atvinnuvega.
     
    Í heimsókn minni til Hafnarfjarðar nýverið minnti bæjarstjórinn fundargesti á glímu Hafnfirðinga við kreppuna á árunum milli stríða þegar helstu atvinnufyrirtæki bæjarins lögðu upp laupana. Þá þurfu bæjarbúar að bretta upp ermar og unnu sigur í harðri baráttu. Það reyndi á samstöðu og dugnað eins og nú.
     
    Það er von mín að Bjartsýnisvefurinn hjálpi okkur öllum að muna að þótt vandinn sé margvíslegur um þessar mundir, þá er líka margt sem gengur vel.
     
    Ólafur Ragnar Grímsson
    forseti Íslands

    Velkomin á Bjartsýni.is

    Bjartsýni.is er vefur þar sem safnað er saman sögum, hugmyndum og ábendingum um góðan árangur í atvinnulífinu, spennandi verkefni og vænlegar leiðir á komandi tímum.
    Lesa meira

    Engin saga er of stutt, of löng, of ómerkileg. Ef þú veist af sögu sem þú vilt koma á framfæri á vefnum, smelltu hér og sendu hana inn.

    Aðstandendur
    Skrifstofa forseta Íslands
    3X Technology
    Almannaheill
    Andrew Burgess
    CCP
    Data Market
    Gogogic
    Háskólinn í Reykjavik
    Hönnunarmiðstöð Íslands
    Hörður Lárusson
    Marel Food Systems
    Mjólkursamsalan
    Ragnar Freyr Pálsson
    Össur
    Bjartsýni.is
    bjartsyni@bjartsyni.is
    Ábyrgðarmaður: Hrannar Baldursson