• Heim
  • Allar sögur
  • Ávarp
  • Senda inn sögu
  • Skilmálar
  • Tenglar
  • Um vefinn

  • Annað jákvætt Saga dagsins | 28.02.10 | 300 flettingar | Prenta | Senda

    Bjartsýni og jákvæðni styrkja hjartað

    Forsíða European Heart Journal, febrúar 2010

    Forsíða European Heart Journal, febrúar 2010

    Vísindamenn komust að þeirri niðurstöðu eftir 10 ára rannsókn að bjartsýni og jákvæðni minnki áhættu á hjartasjúkdómum.

    Þeir komust að því í rannsókn að þeir sem virka hvetjandi, ánægðir og trúa því að glasið sé frekar hálffullt heldur en hálftómt eigi betri möguleika á góðri hjartaheilsu.

    Þetta er fyrsta rannsóknin sem gerð hefur verið og sýnir fram á skýrt samband milli jákvæðni og minni líkna á hjartasjúkdómum.

    Niðurstöðurnar voru birtar í European Heart Journal. Þar er sýnt fram á hvernig neikvætt hugarfar getur haft skaðleg áhrif á hjartað.

    Dr. Karina Davidson hvetur til frekari rannsókna og vinnu til að koma áhrifum af niðurstöðunni út í samfélagið, og þá sérstaklega til forvarnaraðila og umsjónaraðila hjartameðferða.

    Rannsóknin tók 10 ár og einbeitti sér að 1739 heilsuhraustum og fullorðnum einstaklingum. Hjúkrunarfræðingar mátu áhættu á hjartasjúkdómum og mældu jafnframt einkenni þunglyndis, fjandskaps, streitu , og báru saman við tjáningu á jákvæðum tilfinningum eða ‘jákvæðri hlýju’.

    Jákvæð hlýja er reynsla af ánægjulegum tilfinningum eins og gleði, ánægju, spennu, hvatningu og sátt.

    Sjá nánar:

    Tags: , ,


    Velkomin á Bjartsýni.is

    Bjartsýni.is er vefur þar sem safnað er saman sögum, hugmyndum og ábendingum um góðan árangur í atvinnulífinu, spennandi verkefni og vænlegar leiðir á komandi tímum.
    Lesa meira

    Engin saga er of stutt, of löng, of ómerkileg. Ef þú veist af sögu sem þú vilt koma á framfæri á vefnum, smelltu hér og sendu hana inn.

    Aðstandendur
    Skrifstofa forseta Íslands
    3X Technology
    Almannaheill
    Andrew Burgess
    CCP
    Data Market
    Gogogic
    Háskólinn í Reykjavik
    Hönnunarmiðstöð Íslands
    Hörður Lárusson
    Marel Food Systems
    Mjólkursamsalan
    Ragnar Freyr Pálsson
    Össur
    Bjartsýni.is
    bjartsyni@bjartsyni.is
    Ábyrgðarmaður: Hrannar Baldursson