Einstaklingsþotur framleiddar á Nýja-Sjálandi

Einstaklingsþotan prófuð. Mynd: Caters
Þú hefur kannski séð einstaklingsþotur í James Bond kvikmyndum eða lesið um þær í vísindaskáldsögum, en nú eru þær í fyrsta sinn framleiddar til sölu á opnum markaði.
Martin Aircraft Company ætlar að framleiða 500 þotur á ári og selja þær á um kr. 10 milljónir stykkið.
Þotan var fyrst sýnd af uppfinningamanninum Glenn Martin í júlí árið 2009. Hún vegur 115 kíló og vegna þyngdar hennar þarf ekki sérstakt leyfi til að fljúga henni. Hægt er að flúga um 48 kílómetra á hálftíma á fullum tanki.
Nýjasta módelið hefur komist í 2.4 km hæð og getur ferðast 97 kílómetra á klukkustund.
Forstjóri Martin Aircraft Company, Richard Lauder, segir að þotan sé tilvalin fyrir neyðarþjónustu, einkanotkun og jafnvel hernað.
Fyrirtækið vinnur með ónefndum flugvélaframleiðanda að markaðssetningu og frekari þróun.
Sjá nánar: Flying into the future: New Zealand company to make personal jet packs (Telegraph.co.uk)
Tags: Einstaklingsþotur



