Að finna sjálfan sig og sinn farveg
Höfundur: Signý Hafsteinsdóttir, Hugbrot.

Mér hefur aldrei fundist ég passa neins staðar inní, ég fékk snemma á tilfinninguna að ég yrði sjálf að skapa mér farveg fyrir hæfileika mína. Ég tolldi ekki vel í vinnu hjá öðrum, af ýmsum ástæðum, sum fyrirtækin fóru á hausinn eða borguðu seint og illa. Það var engin námsbraut í Háskólanum sem var í samræmi við áhugasvið mitt.
Þannig fór að ég skapaði mér sjálf minn eigin farveg, það var ekki alltaf auðvelt, en ég er þess fullviss að það er farsælla að bera ábyrgð á eigin hamingju, og treysta á sjálfan sig, heldur en að þurfa eiga allt sitt undir öðrum. Mér finnst það í sjálfu sér vera partur af því að fullorðnast, að vinna hjá sjálfum sér og skapa sér sinn eigin veruleika.
Ég hef enga sérstaka menntun aðra en stúdenspróf. Það sem ég hef aðallega fengist við í gegnum árin er alveg ótengt námi mínu, ég hef orðið að reiða mig á brjóstvitið og eðlisávísunina til að fleyta mér áfram. Eftir þá reynslu er ég sannfærð um að menntun sé ofmetin, þá á ég ekki við grunnskólanám og þá menntun sem við sækjum okkur sjálf á okkar eigin forsendum.
Heldur það þegar fólk eyðir mörgum árum í að afla sér einhverrar vitneskju, sem það er ófært um að færa sér í nyt á nokkurn annan hátt en að blaðra um og velta sér upp úr því sem það hefur innbyrt úr námsbókunum, verða einhverskonar bergmál af því sem það hefur lesið.
Ég er líka sannfærð um það að hvert og eitt okkar sé gætt ríkulegum hæfileikum og gáfum, og það fari best á því að hvert okkar tjái og þroski sínar einstöku guðsgjafir. Ekkert okkar má fara til spillis, og þá á ég við það þegar fólk leyfir sér bara að verða lítið brot af því sem það gæti orðið.
Veröldin yrði líka miklu bjartari ef við leyfðum okkur að skína aðeins meira. Það er vitað mál að þau fyrirtæki sem leggja áherslu á það að hver starfsmaður fái að njóta sín gengur betur, og því meira sem reynir á hæfileika og getu fólks því ánægðara verður það.
Fyrirtæki sem vill vaxa og dafna, þarf að leggja áherslu á að skapa farvegi fyrir hæfileika starfólksins. Einstaklingur sem vinnur sjálfstætt, þarf að hlusta á sinn sannleik og sín markmið, og skapa sér farveg í samræmi við það, og axla ábyrgð á sínum veruleika.
Sköpunargleði og hæfileikar njóta sín best, þar sem þeir eru metnir að verðleikum.
Flest okkar vannýta hæfileika okkar og getu, því við getum miklu meira en við höldum.
Ég sjálf hef fundið mér ýmsar afsakanir til þess að hefta mig, uppáhaldsafsökunin mín var peningaleysi, menntunarleysi, ég taldi mér líka trú um að annað fólk eða aðstæður eða tíminn væri ekki réttur. En að lokum kom þetta allt út á eitt, það eina sem einhverntíma stóð í vegi fyrir mér var ég sjálf og mín takmarkandi viðhorf.
Kannski var ábyrgðin það sem ég óttaðist mest því að ef ég vel fyrir mig og tek ábyrgð á vali mínu, þá get ég engum kennt um ef allt gengur ekki að óskum. En loksins þegar ég tók stökkið til fulls og fór að vinna sjálfstætt, þá fyrst upplifði ég frelsi. Frelsi til að vera ég og standa og falla með ákvörðunum mínum, og tekjurnar jukust í samræmi við umsvif mín.
Í dag upplifi ég það að ég passa inní, það er af því að ég hef aðlagað minn vinnuveruleika að mínum hæfileikum og getu. Það gerðist ekki í einum vetfangi heldur tók sinn tíma, ég er ekki í nokkrum vafa um það að aðferðirnar sem ég lærði á Hugeflisnámskeiði hjá Garðari Garðarssyni hafi gert útslagið, þar fann ég leiðir sem ég gat notað til að finna minn eigin farveg og ryðja í burtu hindrunum sem stóðu í vegi fyrir mér.
Ég vil endilega benda fólki á bókina Hugefli, og CD geisladiskana frá Hugbrot ef það vill auðvelda sér leiðina, bókin fæst á www.hugbrot.is
Signý Hafsteinsdóttir
Tags: Hugbrot



