Nýi Glitnir fellir tímabundið niður uppgreiðslugjald
Nýi Glitnir hefur ákveðið að fella tímabundið niður uppgreiðslugjald verðtryggðra húsnæðislána. Uppgreiðslugjald samkvæmt skilmálum þessara lána er 2%. Með þessari aðgerð vill Glitnir koma til móts við þá viðskiptavini sem vilja greiða upp sín lán. Frá og með deginum í dag er því engin þóknun tekin fyrir uppgreiðslu verðtryggðra húsnæðislána, né vegna innáborgunar á höfuðstól.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Nýja Glitnis:
„Við höfum fundið fyrir áhuga hjá viðskiptavinum að greiða niður þessi lán. Sá áhugi er mjög skiljanlegur þegar verðbólga hefur verið jafn há og raun ber vitni. Þetta er ein af þeim leiðum sem við erum að kynna þessa dagana til þess að styðja við bakið á okkar viðskiptavinum.”
Tags: Íslandsbanki




8.03.10 kl. 7:13 am
This is known that money makes people disembarrass. But how to act if someone has no money? The one way only is to receive the loan and just short term loan.
Tilkynna svar