Tónlistargjöf til Bjartsýni.is: Bjartsýnilegur
Hægrismelltu og vistaðu til að hala niður Bjartsýnilegur
Ég er svo ánægður með síðuna ykkar því þetta er það sem vantar algjörlega. Við í hljómsveitinni Mono vorum að gera nýtt lag sem heitir Bjartsýnilegur. Í staðinn fyrir að selja lagið á tonlist.is langar okkur frekar að gefa það og bjartsyni.is virðist vera frábær vettvangur til þess.
TEXTI:
Geng ég greitt í gegn um lífið
reyni samt að slaka á-hyggjurnar
ég reyni bara’ð loka bak við lás og slá
öllu upp í kæruleysi, njóta þess að vera til-veran
virðist bara betri meðan þú ert mér við hlið
reyni samt að slaka á-hyggjurnar
ég reyni bara’ð loka bak við lás og slá
öllu upp í kæruleysi, njóta þess að vera til-veran
virðist bara betri meðan þú ert mér við hlið
Öllu tek af æðruleysi, brosi bara út í eitt-sinn
ég gekk á verri slóðum nú loks er mín hugsun breytt
hugarfar og nýjar vonir, róa hægt á betri mið
innri mann og andrúmsloftið fylli ég af ró og frið
Núna lífið leikur aftur við mig
núna hugsa ég bara um þig og mig
Finn ég loks að streitan hverfur
myrkrið verður aftur bjart-sýnin
virðist bjarga öllu, nú er ekki lengur kalt
mat á þessu öllu saman reyndu barað slaka á-hyggjurnar
skalt bara að reyna’ð loka bak við lás og slá
lag og texti Hlynur Benediktsson
Tags: Bjartsýnilegur



