• Heim
  • Allar sögur
  • Ávarp
  • Senda inn sögu
  • Skilmálar
  • Tenglar
  • Um vefinn

  • Tækifæri til nýsköpunar | 15.01.09 | 257 flettingar | Prenta | Senda

    Stærð veraldar

    Höfundur: Pétur Halldórsson , P&Ó ehf..

    Margt bendir til þess að um langan aldur hafi þjóðir helg­að sér land með mælingum og útreikningum sem byggðust á arfi sagna og trúarhugmynda, um það fjalla bækur Einars og mín. Í þeim eru gamlar hugmyndir rannsakaðar út frá hefðbundnum aðferðum en þó aðallega hlutföllum og mælingum og aðallega í landslagi. Má því segja að þar sé komin skýringin á áhuga mínum á efninu –formum þess, því ég er myndlistar maður.

    Gaman væri að stofnuð verði sérstök deild á háskólastigi í Reykjavík sem kenndi þessi fræði því segja má að engin þjóð í heiminum standi nær þeim en Íslendingar. Heimsmyndin á Rangárvöllum sem Einar uppgötvaði í launsögn Njálu var sú síðasta sinnar tegundar í veraldarsögunni því ný lönd sem fundust eftir árið 1000, voru helguð kristi en ekki hinum heiðnu vættum, helgun landsvæða eftir árið 1000 fór því fram með öðrum hætti. Má því segja að okkur íslendingum renni blóð til skyldunnar, því rannsóknum ber saman um að heimsmynd Rangárvalla var innflutt þekking sem barst hingað í farteski höfðingja. Frumgerðir hennar er að finna um allan heim sem grundvöllur menningarsvæða allt frá Aþenu til London eða Rangárvöllum til Nílarvalla.
    Helgun lands í hinni fornu jarðartrú virðist hafa verið athöfn endurfæðingar þar sem jörðin sjálf birtist sem lifandi veruleiki.

    Ef háskólar keppast um nemendur, sé ég sóknarfæri fyrir lærdóms deild sem rannsakar hugmyndafræði fornaldar með þessum formerkjum. Deild sem hæfir þjóð sem stærir sig af því að sitja á mesta menningararfi sagna í heiminum, þjóð sem hefur metnað og getu til að lesa það sem skrifað var á skinn í den.
    Heimsmyndin sem landnámsmenn hennar mörkuðu í land var vel falin við trúskiptin en kemur nú upp á yfirborðið í launsögn frægustu skinnbókar sögueyjunnar; Njálssögu. Sögueyjan á að segja slíka sögu. Sennilega getur sú saga varpað ljósi á uppbyggingu menningar svæða veraldar.

    Pétur Halldórsson
    Höfundur bókarinnar Stærð veraldar (Salka 2007).
    petur@po.is

    Tags:


    Velkomin á Bjartsýni.is

    Bjartsýni.is er vefur þar sem safnað er saman sögum, hugmyndum og ábendingum um góðan árangur í atvinnulífinu, spennandi verkefni og vænlegar leiðir á komandi tímum.
    Lesa meira

    Engin saga er of stutt, of löng, of ómerkileg. Ef þú veist af sögu sem þú vilt koma á framfæri á vefnum, smelltu hér og sendu hana inn.

    Aðstandendur
    Skrifstofa forseta Íslands
    3X Technology
    Almannaheill
    Andrew Burgess
    CCP
    Data Market
    Gogogic
    Háskólinn í Reykjavik
    Hönnunarmiðstöð Íslands
    Hörður Lárusson
    Marel Food Systems
    Mjólkursamsalan
    Ragnar Freyr Pálsson
    Össur
    Bjartsýni.is
    bjartsyni@bjartsyni.is
    Ábyrgðarmaður: Hrannar Baldursson