• Heim
  • Allar sögur
  • Ávarp
  • Senda inn sögu
  • Skilmálar
  • Tenglar
  • Um vefinn

  • Annað jákvætt | 13.01.09 | 265 flettingar | Prenta | Senda

    Námskeið: Úr skuldum í jafnvægi

    Námskeiðið er byggt á hugmyndafræðinni: Leiðin til velgengni. Þar er fjallað um hvað hver og einn þarf að tileinka sér í hugsun og hegðun til að fjármál séu í lagi. Fjallað er um hvernig bágri stöðu er komið í jafnvægi og hvernig vaxa má þaðan.

    Fjallað eru um helstu hindranir og vinnuaðferðir til að ná árangri.

    Um er að ræða hópnámskeið þar sem hópurinn hittist einu sinni í viku í fimm vikur. Tveir og hálfur klukkutími í senn.

    Heimaverkefni þar sem hver og einn vinnur með sín fjármál.

    Einkatíma fyrir hvern og einn þar sem ráðgjafi finnur leiðir til úrbóta með hverjum þátttakanda. Einkatími er einn á námskeiðstímanum. Hægt er að bæta við fleiri einkatímum.

    Á námskeiðum lærir þátttakandi vinnuaðferðir til að bæta fjárhagsstöðu sína.

    Hann öðlast skilning á hvað sá hefur tileinkað sér sem nýtur velgengni í fjármálum.

    Hann öðlast skilning á hverju hann þarf sjálfur að breyta til að öðlast velgengni.

    Í einkatímum eru er vandinn fundinn, möguleg lausn og aðgerðaráætlun gerð.

    Á meðan unnið er að lausn er veittur margþættur stuðningur eftir þörfum hvers og eins.

    Í úttekt sem Félagsvísindastofnun Háskólans gerði á námskeiðinu, þá kom m.a. fram:

    Út frá niðurstöðum rannsóknarinnar er hægt að svara rannsóknarspurningunni hvort námskeiðið “Leiðin til velgengni” skili bættum fjárhag játandi. Fjárhagur batnar, langtíma- og skammtímaskuldir minnka, fólk notar síður greiðslukort og verður almennt færara um að taka á fjármálum sínum og neyslu.

    Í lok námskeiðs hefur þátttakandi öðlast skilning á eðli fjármálavandans og hvað þarf að gera til að ráða bót á honum. Sumir verða búnir að leysa vandann. Aðrir verða komnir með skýra aðgerðaráætlun sem unnið verður eftir. Flestir verða sjálfbjarga að loknu námskeiði en sumir þurfa áframhaldandi stuðning.

    Nánari upplýsingar um námskeiðið og dagsetningar er hægt að finna á www.velgengni.is

    Námskeiðið kostar 19.900 kr, innifalið námskeið einu sinni í viku í fimm vikur, námskeiðsgögn og einn einkatími.

    Til að panta námskeið smelltu á linkinn, http://www.velgengni.is/Item.aspx?ItemID=53 eða fá frekari upplýsingar hringdu í síma 867 6800 eða sendu okkur fyrirspurn á min@velgengni.is.

    Tags:


    Velkomin á Bjartsýni.is

    Bjartsýni.is er vefur þar sem safnað er saman sögum, hugmyndum og ábendingum um góðan árangur í atvinnulífinu, spennandi verkefni og vænlegar leiðir á komandi tímum.
    Lesa meira

    Engin saga er of stutt, of löng, of ómerkileg. Ef þú veist af sögu sem þú vilt koma á framfæri á vefnum, smelltu hér og sendu hana inn.

    Aðstandendur
    Skrifstofa forseta Íslands
    3X Technology
    Almannaheill
    Andrew Burgess
    CCP
    Data Market
    Gogogic
    Háskólinn í Reykjavik
    Hönnunarmiðstöð Íslands
    Hörður Lárusson
    Marel Food Systems
    Mjólkursamsalan
    Ragnar Freyr Pálsson
    Össur
    Bjartsýni.is
    bjartsyni@bjartsyni.is
    Ábyrgðarmaður: Hrannar Baldursson