• Heim
  • Allar sögur
  • Ávarp
  • Senda inn sögu
  • Skilmálar
  • Tenglar
  • Um vefinn

  • Saga dagsins | 30.12.08 | 406 flettingar | Prenta | Senda

    Velgengni byrjar innan frá

    Höfundur: Sigurður Erlingsson, Velgengni.is.

    Það var 12. janúar 2008 að draumurinn varð að veruleika, formlegur opnunardagur á vefsíðunni www.velgengni.is. Síðan í október höfðum við verið að vinna að uppbyggingu og forritun á síðunni og strax í nóvember 2007 opnuðum við prófunarútgáfu sem margir áhugasamir um velgengi skráðu sig inná og fóru að prófa. Nú er liðið ár síðan og við njótum velgengni, alltaf bætast nýjir aðilar í hópinn og ný tækifæri hafa opnast.

    Tilgangur síðunnar er að hafa vettvang þar sem fólk getur nálgast uppbyggilegt efni, hefur læst einkasvæði á vefnum þar sem það getur sett upp drauma sína og markmið og unnið með það.

    Ég nota að sjálfsögðu draumaborðin á velgengni.is og ef þau eru rétt notuð þá eru þau öflug hjálpartæki til að ná árangri. Ég setti mér meðal annars markmið um að ná árangri í líkamsrækt. Var orðinn allt of þungur (hver kannast ekki við þetta) og hafði í langan tíma verið á leiðinni að gera eitthvað í málunum. Ég skrifaði markmiðið sem var að ná því að verða 78 kg. Ég skrifaði niður leiðirnar að markmiðinu, bjó mér til jákvæðar staðhæfingar tengt markmiðinu og setti mér tímamörk. Síðan fann ég mér mynd á vefnum af aðila sem hafði það útlit sem ég var að leita að (með sixpack ;-) ).

    Ég byrjaði í mars 2008 og ætlaði mér 6 mánuði í það að ná þessum árangir. Aðeins 8 vikum seinna þá höfðu 18 kíló horfið. Á þessu tímabili hafði ég aldrei borðað jafn mikið, þannig að ekki var þetta svelt, ég var hressari jákvæðari og öflugari.

    Ég fékk enn og aftur staðfestingu á því hvað það er öflugt að skrifa niður draumana sína og síðan viðhalda því með því að minna sig reglulega á hvert maður sé að halda.

    En það er nauðsynlegt að passa það að hafa jafnvægi í lífinu, markmiðin þurfa að vera til á öllum sviðum lífisins, því annars skapast ójafnvægi.

    Trúin á sjáfan sig er öflugust og að láta skoðanir annara ekki hafa áhrif á sig. Þú getur ekki borið ábyrð á því þó aðrir hafi ekki trú þínum draumum.

    Það skemmtilega við það að hafa opnað síðuna er að ég hef kynnst fjölda af skemmtilegu og jákvæðu fólki. Margir senda mér einnig skemmtileg skilaboð, grein sem viðkomandi hefur lesið eða skilaboðin sem við sendum út á morgnana. ” Spakmæli dagsins” hefur hitt á réttan stað og hjálpað til að finna svarið sem verið var að leita að. Það er einmitt tilgangurinn og njóta velgengni og deila henni með öðrum.

    Núna þegar kreppir að þá er nauðsynlegt að halda athyglinni og sjá tækifærin í kringum sig. Nauðsynlegt að vita að þegar einar dyr lokast, opnast margar aðrar. Maður má bara ekki stara of lengi á dyrnar sem lokuðust, þá sér maður ekki allar þær sem voru að opnast. En hvort sem þú trúir því eða ekki, þá voru aðrar dyr að opnast, alveg sama hversu ólíklegt sem þér finnst það. Það er mjög erfitt að trúa því þegar óttinn, hræðslan og óvissan naga mann, það þarf kjark til að standa upp og líta í kringum sig og þora. En það eiga allir tækifæri.

    Velgengni byrjar innan frá. Skapaðu þína eigin framtíð, tækifærið þitt er í dag. ;-)

    Tags:

    Eitt Svar við “Velgengni byrjar innan frá”


    1. Góðan dag,

      Frábært framtak hjá ykkur. Ég hef einmitt verið að reyna að setja svona af stað á facebook. Gaman væri að miðla góðum fréttum þar líka. Endilega setjið góðar fréttir á facebooksíðuna “góðar fréttir” og virkjum bjartsýnina.
      Tilkynna svar


    Velkomin á Bjartsýni.is

    Bjartsýni.is er vefur þar sem safnað er saman sögum, hugmyndum og ábendingum um góðan árangur í atvinnulífinu, spennandi verkefni og vænlegar leiðir á komandi tímum.
    Lesa meira

    Engin saga er of stutt, of löng, of ómerkileg. Ef þú veist af sögu sem þú vilt koma á framfæri á vefnum, smelltu hér og sendu hana inn.

    Aðstandendur
    Skrifstofa forseta Íslands
    3X Technology
    Almannaheill
    Andrew Burgess
    CCP
    Data Market
    Gogogic
    Háskólinn í Reykjavik
    Hönnunarmiðstöð Íslands
    Hörður Lárusson
    Marel Food Systems
    Mjólkursamsalan
    Ragnar Freyr Pálsson
    Össur
    Bjartsýni.is
    bjartsyni@bjartsyni.is
    Ábyrgðarmaður: Hrannar Baldursson