• Heim
  • Allar sögur
  • Ávarp
  • Senda inn sögu
  • Skilmálar
  • Tenglar
  • Um vefinn

  • Sigrar á kreppudögum | 12.12.08 | 1,283 flettingar | Prenta | Senda

    Prjóniprjón

    Við vinkonurnar (Ragga E og Halldóra Skarp) gáfum út prjónabókina Prjóniprjón fyrir viku síðan. Fyrsta prentun er nú uppseld og við erum að koma meiru af stað.

    Heilmikill prjónaáhugi virðist vera hjá allskonar fólki um þessar mundir og eiginlega finnst okkur “kreppan” hafa blásið miklu lífi í prjón og ýmsa handavinnu hér og þar. Það er eins og fólk sæki einhverja sálarró í þessa iðju sem líka er einhverskonar afturhvarf til einfaldleika. Ástandið hefur hvatt marga til að endurskoða gildi og verðmæti í lífinu og oftar en ekki er niðurstaðan sú að fólkið okkar skiptir mestu máli. Þar kemur prjónið líka inn, því samvera kringum prjón er svo sérstök og notaleg.

    Við stilltum verði bókarinnar okkar í hóf til að sem flestir gætu eignast hana - það kom í ljós í gær þegar Ragga kíkti í bókabúð að Prjóniprjón er þúsundkalli ódýrari en næsta prjónabók við hliðina. Hún er því vel innan jólagjafamarka, í mörgum tilfellum að minnsta kosti.

    Við finnum líka vel fyrir því að prjón og sköpun hvetur til nýrra hugmynda og erum handvissar um að þessi mjúka bylgja mun kveikja allskonar hugmyndir til nýsköpunar í atvinnuskyni á komandi mánuðum.

    Prjóniprjón: www.prjoniprjon.blogspot.com

    Tags:


    Velkomin á Bjartsýni.is

    Bjartsýni.is er vefur þar sem safnað er saman sögum, hugmyndum og ábendingum um góðan árangur í atvinnulífinu, spennandi verkefni og vænlegar leiðir á komandi tímum.
    Lesa meira

    Engin saga er of stutt, of löng, of ómerkileg. Ef þú veist af sögu sem þú vilt koma á framfæri á vefnum, smelltu hér og sendu hana inn.

    Aðstandendur
    Skrifstofa forseta Íslands
    3X Technology
    Almannaheill
    Andrew Burgess
    CCP
    Data Market
    Gogogic
    Háskólinn í Reykjavik
    Hönnunarmiðstöð Íslands
    Hörður Lárusson
    Marel Food Systems
    Mjólkursamsalan
    Ragnar Freyr Pálsson
    Össur
    Bjartsýni.is
    bjartsyni@bjartsyni.is
    Ábyrgðarmaður: Hrannar Baldursson