• Heim
  • Allar sögur
  • Ávarp
  • Senda inn sögu
  • Skilmálar
  • Tenglar
  • Um vefinn

  • Sigrar á kreppudögum | 24.11.08 | 1,439 flettingar | Prenta | Senda

    CCP snýr vörn í sókn – Risavaxin viðbót við EVE Online tilkynnt

    Frá CCP. CCP tilkynnti nýlega um útgáfu stærstu viðbótar fyrr og síðar, við tölvuleikinn EVE Online. EVE Online er netspilunarleikur með vísindaskáldsöguívafi sem gerist í fjarlægri framtíð og er hann spilaður af 240.000 spilurum víða um heim. EVE Online er best lýst sem stórum heimi þar sem barist er á banaspjótum um yfirráð yfir svæðum, auðlindum og mörkuðum.
    Netspilunarleikir eru ólíkir hefðbundnum leikjum að því leyti að þeir eru stöðugt í þróun eftir útgáfu, og er EVE Online sannarlega engin undantekning á þeirri reglu. Sú hefð hefur skapast að tvær stórar viðbætur við leikinn komi út á hverju ári með nýjum og spennandi spilunarmöguleikum fyrir notendur. Í kjölfar óljósra aðstæðna á markaði tók CCP þá ákvörðun að spýta í lófana svo um munar og ráðast í sitt metnaðarfyllsta verkefni hingað til.
    „Sumarútgáfan“, eins og hún er kölluð enn sem komið er, mun innihalda byltingarkenndar nýjungar í geimskipasmíði, bardagatækni og könnun á áður óþekktum leyndardómum himinheimsins. Fjölmörgum þaulreyndum lykilstarfsmönnum hefur verið kippt úr hinum ýmsu framtíðarverkefnum sem ekki tengjast EVE Online á beinan hátt og þeir settir í að framleiða ný ævintýri fyrir spilara EVE á methraða. Aldrei hafa fleiri starfsmenn starfað við EVE Online en þessa dagana.
    Stefnt er á útgáfu Sumarútgáfunnar snemma í vor, í takt við þá miklu bjartsýni og kraft sem einkennir CCP þessa dagana.


    Velkomin á Bjartsýni.is

    Bjartsýni.is er vefur þar sem safnað er saman sögum, hugmyndum og ábendingum um góðan árangur í atvinnulífinu, spennandi verkefni og vænlegar leiðir á komandi tímum.
    Lesa meira

    Engin saga er of stutt, of löng, of ómerkileg. Ef þú veist af sögu sem þú vilt koma á framfæri á vefnum, smelltu hér og sendu hana inn.

    Aðstandendur
    Skrifstofa forseta Íslands
    3X Technology
    Almannaheill
    Andrew Burgess
    CCP
    Data Market
    Gogogic
    Háskólinn í Reykjavik
    Hönnunarmiðstöð Íslands
    Hörður Lárusson
    Marel Food Systems
    Mjólkursamsalan
    Ragnar Freyr Pálsson
    Össur
    Bjartsýni.is
    bjartsyni@bjartsyni.is
    Ábyrgðarmaður: Hrannar Baldursson