Atvinnumissir var upphaf nýrra tækifæra
Frá Jóhanni Jónassyni, 3X Technology.
Árið er 1988 og staðurinn er Ísafjörður, að öðrum ólöstuðum talinn vera einn fallegasti bærinn á landinu.
Vinnustaðurinn er Pólstækni, vélaframleiðandi fyrir sjávarútveg, mikil nýsköpun og vöruþróun og góð gróska. Félagið fór í gjaldþrot og störfuðu þar á þriðja tug manna og kvenna bæði á Ísafirði og á söluskrifstofu í Rvk. Yfir tuttugu manns misstu vinnuna og var lítið um sambærileg tækifæri að ræða í svo litlum bæ eins og Ísafirði. Það voru þung skrefin hjá starfsmönnum að ganga inná bæjarskrifstofuna og skrá sig atvinnulausa í fyrsta sinn á ævinni og ekki laust við að mönnum fyndist að þeir hefðu persónulega brugðist eða gert eitthvað rangt sem að lokum leiddi til þess að félagið færi í þrot. Því ákváðu ellefu starfsmenn að taka sig saman og sömdu við bústjóra um kaup á félaginu. Innan skamms tíma var starfsemi komið á að nýju undir nafni Póls með nýjum áherslum og tókst á undraskömmum tíma að tryggja atvinnu þessa fólks og fljótlega vatt starfsemin uppá sig á nýjan leik. Félagið starfaði til ársins 2006 en var þá selt og fengu þáverandi eigendur sanngjarnt verð fyrir og blómstrar afrakstur þeirrar nýsköpunarvinnu nú á nýjum vettvangi.
Þessi lexía kenndi okkur m.a. mikilvægi þess að trúa á okkur sjálf, standa saman í lífsbaráttunni, þora að stíga fram og reyna að takast á við breytta tíma. Í þessu tilfelli gekk það, því margt gengur vel…



